Fyrsta sýning ársin fór fram í mars sl og mættum við með þrjá hunda til leiks, Pablo, Dísu og Easy. Byrjaði árið nokkuð vel hjá Ösku ræktun, en öll þrjú fengu excellent og frábæra dóma. Pablo okkar gerði sér lítið fyrir og varð enn og aftur besti rakki tegundar og hlaut sitt þriðja Alþjóðlega meistarastig. Pablo er þá eins og staðan er stigahæsti schäfer ársins, en sýningarárið er rétt að hefjast og mikil spenna fyrir komandi tímum.
0 Comments
16. janúar fæddust hjá okkur 8 gullfallegir hvolpar undan meistaranum ISShCh RW-19 SG1 Lider von Panoniansee og svörtu perlunni henni Utopiu von Ingenhoventeich.
Skiptingin var eins og best verður á kosið, 4 rakkar og 4 tíkur, 2 rakkar voru svartir og 2 venjulegir og 2 svartar tíkur oog 2 venjulegar. Hvolpunum og mömmu þeirra heilsast vel og verður ekkert lítið gaman að fylgjast með þeim stækka og dafna. áhugasömum er bent á að hafa samband í gegnum tölvupóst [email protected] Október sýning HRFÍ fór fram helgina 7.-8. október síðastliðin og mætti fyrsti Ösku fulltrúinn galvaskur til leiks. Gullmolinn okkar sem við héldum eftir úr gotinu undan Z og Ivani hún Ösku Aska Borgfjörð mætti í fyrsta sinn í yngri hvolpaflokk. Hún hlaut einkunina sérlega lofandi og var valin besti hvolpur tegundar. Seinna um daginn mætti skvísan í úrslit þar sem hún var valin úr stórum hópi hvolpa sem 3. Besti hvolpur sýningar. Glæsileg byrjun á sýningarferlinum hennar og var hún listilega sýnd af meðeiganda sínum henni Guðrúnu.
Pablo okkar endurtók leikinn frá því í ágúst og var valinn besti rakki tegundar og fékk þar sitt annað Alþjóðlega meistarastig. Sonur hans, Gjósku Örlagasteinn varð annar besti rakki tegundar úr unghundaflokki og hlaut sitt fyrsta Íslenska meistarastig og vara-Alþjóðlegt meistarastig. Við erum ekki lítið stolt af Pablo okkar, en hann er bæði að sanna sig sem meistarinn sem hann er sem og frábær ræktunarhundur. Pablo ætlar að sleppa nóvember sýningunni og mætir aftur til leiks 2024. Þá er flotti gaurinn okkar orðinn meistari, en kláraði hann titilinn sinn fyrr í sumar.
Mætti hann svo í fyrsta sinn í meistaraflokk á síðustu sýningu og gerði sér lítið fyrir og varð Besti hundur tegundar, fékk sitt fyrsta norðurlanda meistarastig og kláraði svo daginn með því að verða í 3. sæti í tegundarhópi 1. Við tókum stutta æfingu fyrir Júní sýningu HRFÍ og Karólína vinkona okkar smellti nokkrum myndum af Gjósku Xtru, Gjósku Örlagadís og bróður hennar honum Gjósku Örlagastein.
Þá er það staðfest Ösku A got væntanlegt í júní og við getum ekki beðið eftir litlu molunum okkar.
Væntanleg móðir en Gjósku Z, en hún er yndisleg tík í alla staði. Z er frábærlega geðgóð tík, heilbrigð á líkama og sál fyrir utan það hversu falleg hún er. Hún er undan meisturunum NORDUCH ISShCh NLM RW-18-19 Gjósku Unu Bunu og ISShCh RW-19 SG1 Lider von Panoniansee. Z var ein í goti og hefur ekki verið mikið sýnd á sýningum en er með vara Alþjóðlegt meistarastig og var valin 3. besta tík tegundar. Ivan er innfluttur frá þýskalandi og er án efa einn geðbesti rakki landsins. Ivan er Íslenskur meistari, Ungliðameistari og Hlýðni 1 meistari og hefur gefið af sér frábær afkvæmi sem hafa unnið til margra verðlauna. Við berum miklar væntingar til þessa flotta gots og geta áhugasamir haft samband á [email protected] Þá erum við búin að fá staðfest ræktunarnafnið okkar Ösku ræktun og rétt í tæka tíð áður en fyrstu ættbækurnar voru gefnar út.
Við vorum með fyrsta gotið okkar í janúar en var það undan meistaranum okkar henni ISShCh ISJCh Gjósku www.Píla. is og innflutta gæðablóðinu honum CK'S Team Joker. 2 Rakkar og 2 Tíkur fóru á frábær heimili og hlökkum við til þess að fylgjast með þeim vaxa og dafna. Ösku Hengill Ösku Hekla Ösku Keilir Skuggi Ösku Katla |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
April 2024
Categories |