Við tókum stutta æfingu fyrir Júní sýningu HRFÍ og Karólína vinkona okkar smellti nokkrum myndum af Gjósku Xtru, Gjósku Örlagadís og bróður hennar honum Gjósku Örlagastein.
0 Comments
Þá er það staðfest Ösku A got væntanlegt í júní og við getum ekki beðið eftir litlu molunum okkar.
Væntanleg móðir en Gjósku Z, en hún er yndisleg tík í alla staði. Z er frábærlega geðgóð tík, heilbrigð á líkama og sál fyrir utan það hversu falleg hún er. Hún er undan meisturunum NORDUCH ISShCh NLM RW-18-19 Gjósku Unu Bunu og ISShCh RW-19 SG1 Lider von Panoniansee. Z var ein í goti og hefur ekki verið mikið sýnd á sýningum en er með vara Alþjóðlegt meistarastig og var valin 3. besta tík tegundar. Ivan er innfluttur frá þýskalandi og er án efa einn geðbesti rakki landsins. Ivan er Íslenskur meistari, Ungliðameistari og Hlýðni 1 meistari og hefur gefið af sér frábær afkvæmi sem hafa unnið til margra verðlauna. Við berum miklar væntingar til þessa flotta gots og geta áhugasamir haft samband á [email protected] Þá erum við búin að fá staðfest ræktunarnafnið okkar Ösku ræktun og rétt í tæka tíð áður en fyrstu ættbækurnar voru gefnar út.
Við vorum með fyrsta gotið okkar í janúar en var það undan meistaranum okkar henni ISShCh ISJCh Gjósku www.Píla. is og innflutta gæðablóðinu honum CK'S Team Joker. 2 Rakkar og 2 Tíkur fóru á frábær heimili og hlökkum við til þess að fylgjast með þeim vaxa og dafna. Ösku Hengill Ösku Hekla Ösku Keilir Skuggi Ösku Katla |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
April 2024
Categories |