Þá er það staðfest Ösku A got væntanlegt í júní og við getum ekki beðið eftir litlu molunum okkar.
Væntanleg móðir en Gjósku Z, en hún er yndisleg tík í alla staði. Z er frábærlega geðgóð tík, heilbrigð á líkama og sál fyrir utan það hversu falleg hún er. Hún er undan meisturunum NORDUCH ISShCh NLM RW-18-19 Gjósku Unu Bunu og ISShCh RW-19 SG1 Lider von Panoniansee. Z var ein í goti og hefur ekki verið mikið sýnd á sýningum en er með vara Alþjóðlegt meistarastig og var valin 3. besta tík tegundar. Ivan er innfluttur frá þýskalandi og er án efa einn geðbesti rakki landsins. Ivan er Íslenskur meistari, Ungliðameistari og Hlýðni 1 meistari og hefur gefið af sér frábær afkvæmi sem hafa unnið til margra verðlauna. Við berum miklar væntingar til þessa flotta gots og geta áhugasamir haft samband á [email protected]
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
April 2024
Categories |