Október sýning HRFÍ fór fram helgina 7.-8. október síðastliðin og mætti fyrsti Ösku fulltrúinn galvaskur til leiks. Gullmolinn okkar sem við héldum eftir úr gotinu undan Z og Ivani hún Ösku Aska Borgfjörð mætti í fyrsta sinn í yngri hvolpaflokk. Hún hlaut einkunina sérlega lofandi og var valin besti hvolpur tegundar. Seinna um daginn mætti skvísan í úrslit þar sem hún var valin úr stórum hópi hvolpa sem 3. Besti hvolpur sýningar. Glæsileg byrjun á sýningarferlinum hennar og var hún listilega sýnd af meðeiganda sínum henni Guðrúnu.
Pablo okkar endurtók leikinn frá því í ágúst og var valinn besti rakki tegundar og fékk þar sitt annað Alþjóðlega meistarastig. Sonur hans, Gjósku Örlagasteinn varð annar besti rakki tegundar úr unghundaflokki og hlaut sitt fyrsta Íslenska meistarastig og vara-Alþjóðlegt meistarastig. Við erum ekki lítið stolt af Pablo okkar, en hann er bæði að sanna sig sem meistarinn sem hann er sem og frábær ræktunarhundur. Pablo ætlar að sleppa nóvember sýningunni og mætir aftur til leiks 2024.
0 Comments
Leave a Reply. |
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
April 2024
Categories |